


Um Eyjalistann
Eyjalistinn var stofnaður árið 2014. Markmið listans frá stofnun hans hefur verið að
-
Auka lýðræðislega þátttöku íbúa.
-
Sameina málefnalega ólíka einstaklinga og flokka.
-
Vinna að bættum hag sveitarfélagsins í heild.
-
Leggja áherslu á samvinnu, samtal og traust.
Okkar saga
Eyjalistinn í Vestmannaeyjum var stofnaður í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna árið 2014 og bauð í fyrsta sinn fram þann 31. maí sama ár. Listinn varð til þegar hópur íbúa og sveitarstjórnarfólks úr ólíkum áttum taldi þörf á nýrri og sameinandi rödd í bæjarstjórn. Að baki stofnuninni stóð fólk með reynslu úr mismunandi stjórnmálaflokkum, meðal annars Bjartri framtíð, Framsóknarflokknum, Samfylkingunni og Vinstri grænum, auk óháðra einstaklinga sem vildu leggja áherslu á málefni Vestmannaeyja umfram hefðbundna flokkadrætti.
Megintilgangur Eyjalistans var frá upphafi að vinna að hagsmunum Vestmannaeyinga með samvinnu, opnu samtali og lausnamiðaðri nálgun. Áhersla var lögð á að ákvarðanir í sveitarstjórn yrðu teknar með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi, án þess að pólitísk hugmyndafræði eða flokkslína stýrði för. Listinn setti sér jafnframt það markmið að efla lýðræðislega þátttöku íbúa og skapa vettvang þar sem raddir ólíkra hópa fengju að heyrast.
Með þessu varð Eyjalistinn tákn fyrir staðbundið lýðræði í Vestmannaeyjum. Framboð sem spratt úr samfélaginu sjálfu og byggði á trú á samstöðu, ábyrgð og sameiginlegri framtíð bæjarins.