top of page

Stefnuskrá Eyjalistans 2026

Fjölskyldu, velferðar og tómstundamál

  • Hækka og stigskipta frístundastyrk í 75.000 kr. og fjölga aðildarfélögum. 
     

  • Skoða ráðningu á húsverði við íþróttamiðstöð og Hásteinssvæði.
     

  • Færa félagsmiðstöð nær Barnaskólanum, auka nýtingu. 

  • Tryggja að iðjuþjálfi, þroskaþjálfi og sálfræðingur starfi áfram hjá Vestmannaeyjabæ.
     

  • Styðja áfram við Janusarverkefnið og halda áfram stafrænni vegferð í öldrunarmálum. 
     

  • Bæta aðgengismál enn frekar.
     

  • Stuðla að fleiri atvinnutækifærum fatlaðra og huga að framtíðarsýn þeirra.
     

  • Fara í nauðsynlegar framkvæmdir í Heimaey með þarfir þjónustuþega í huga. 
     

  • Stofna endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk utan vinnumarkaðar.

Skóla og fræðslumál

  • Tryggja byggingu nýs leikskóla við Löngulág á kjörtímabilinu með möguleika á stækkun. 
     

  • Bjóða áfram upp á heimgreiðslur og stefna á hækkun á greiðsluþaki ef þörf þykir. 
     

  • Ráða fjöltyngisstjóra og tryggja áfram sérkennslustjóra innan leikskólanna og tryggja ÍSAT kennslu í grunnskólum. 
     

  • Skoða þörfina á gæsluvelli í sumarlokun leikskóla og fylgjast náið með þróun nýs leikskóla kerfis.   
     

  • Tryggja hollt og gott fæði í leik- og grunnskólum og að gjaldtaka verði sambærileg öðrum sveitarfélögum. 
     

  • Halda áfram að styðja við ,,Kveikjum neistann” og halda við tækjakosti beggja grunnskóla.   
     

  • Halda áfram nauðsynlegu viðhaldi á skólahúsnæðum bæjarins. 
     

  • Skoða möguleikann á frekari stuðning við sérfræðinema sem skuldbinda sig að námi loknu að starfa amk tvö ár hjá Vestmannaeyjabæ. 

Menningarmál

  • Kanna möguleikann á stækkun á Einarsstofu í Safnahúsi en það myndi efla þeirra góðu vinnu. 
     

  • Halda áfram verkefninu “Viltu hafa áhrif?”
     

  • Styðja við fjölbreytta menningar- og listsköpun á sem flestum sviðum. 

  • Nýta Stakkagerðistún betur og fá íbúa til liðs við okkur um frekari framkvæmdir þar.

650618710_922017706855013_4754637125128277975_n (1).jpg
485121680_4196211787371128_6410630353386311364_n.jpg

Umhverfis, framkvæmda og skipulagsmál

  • Auka gagnsæi til íbúa um framkvæmdir bæjarins. 
     

  • Tryggja áframhaldandi viðhald á fasteignum bæjarins.
     

  • Fá skýrt skipulag á framkvæmdum við Íþróttamiðstöð sem og framtíðarsýn íþróttahreyfinga.  
     

  • Skoða byggingu sjúkralaugar af alvöru.
     

  • Tryggja Lista- og menningarfélagi húsnæði. færði þennan punkt. 
     

  • Stórbæta umferðaröryggi við leik- og grunnskóla bæjarins.  
     

  • Tryggja uppbyggingu á lóðum og að gatnagerð sé hafin  fyrir úthlutun lóða. 

  • Efla skipulag á iðnaðarlóðum. 
     

  • Veita aðhald í sorpmálum, tryggja umhirðu og fjölga grenndarstöðvum. 

  • Halda áfram uppbyggingu leikvalla í hverfum bæjarins.  
     

  • Kanna þörfina á uppbyggingu þjónustuíbúða fyrir eldra fólk.

Atvinnu- og hafnarmál

  • Halda áfram þeirri vinnu við stórskipahöfn sem þegar er hafin. 
     

  • Halda áfram stuðningi við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja.
     

  • Áframhaldandi uppbygging á göngustígum og bæta aðgengi á útivistarsvæðum. 
     

  • Skoða endurnýjun á tækjakosti slökkviliðs Vestmannaeyja á kjörtímabilinu. 
     

  • Styðja við hvers konar nýsköpunarfyrirtæki með t.d með nýsköpunarsjóði

675143540_1611858796763179_703387178247104089_n.jpg
287783837_3342374159421566_4460763400265852351_n.png

Hagsmunamál

  • Tryggja áfram ábyrgan rekstur. 
     

  • Þrýsta á ríkið um stórbættar samgöngur við Vestmannaeyjar. 
     

  • Leggja áherslu á viðbragðsáætlun við lokunum í Landeyjahöfn og bilunum á Herjólfi.
     

  • Tryggja að ríkið komi að stærstum hluta að greiðslu almannavarnalagnar NSL 4.
     

  • Þrýsta á byggingu nýs hjúkrunarheimilis við HSU.
     

  • Þrýsta á ríkið um áframhaldandi góða grunnþjónustu á HSU og að sjúkraflugvél verði staðsett í Eyjum. 
     

  • Fá aukningu á flugferðum yfir veturinn og krefjast ferða sem nýtast sem dagsferðir fyrir íbúa. 
     

  • Krefjast að málum Vestmannaeyja verði forgangsraðað betur í samgönguáætlun t.d. stórskipahöfn, nýr dráttarbátur og framkvæmdir á Básaskersbryggju.

bottom of page