top of page

Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara

Arndís María Kjartansdóttir

Arndís María Kjartansdóttir

5. maí 2026

Íhugun eftir heimsókn á Bjargið

Breytt samfélög

Nútíma samfélög eru byggð á öðrum grunni en áður.  Fjölskyldur bjuggu saman, fengu stuðning af hvort öðru og allir áttu hlutverk, sérstaklega eldra fólkið. Nú er áherslan á sjálfstæði, að búa ein og óstudd, fjarri fjölskyldunni sem áður myndaði félagsleg tengsl við aðra fjölskyldumeðlimi alla daga. Tækifærin og tíminn til samveru, nándar og tengslamyndunar minnkar sífellt.

Rannsóknir

Samkvæmt rannsóknum er félagsleg einangrun orðin ein mesta heilsufarsógn samfélagsins í dag, skaðsemi hennar er svipuð ef að einstaklingur reykir 15 sígarettur á dag.  Þar á eftir koma þættir eins og að drekka 6 glös af áfengi daglega, almennt hreyfingarleysi, offita og að lokum mengun.  Andlegur stuðningur frá foreldrum sem og sá tími sem foreldrar eyða með börnum sínum er stærsti áhrifaþátturinn í hversu hamingjusöm börn verða á sínum fullorðinsárum.


Allir hafa hlutverki í samfélagi

Að stuðla að félagslegri heilsu og geðrækt er eitthvað sem við getum öll lagt eitthvað af mörkum til. Við sem samfélag og sem íbúar á lítilli eyju ættum að geta gert betur. Bæði hefur magn og gæði félagslegra tengsla mikil áhrif á heilsu fólks, líðan þeirra og lífslíkur, líka hjá okkar eldra fólki.  Að vera einmana er ekki bara sárt heldur er það virkileg heilsufarsleg ógn sem okkur ber að taka alvarlega og er skortur á félagslegum tengslum dauðans alvara.


Hvað getum við gert? 
  • Við getum stuðlað að velsæld, velsæld fyrir alla okkar íbúa.

  • Sveitarfélögin geta stuðlað að heilsueflandi samfélagi og aukið inngrip til að auka velsæld í samfélaginu.

  • Við getum byggt fleiri þjónustuíbúðir og eflt félagslegt starf enn frekar

 

Öll getum við unnið að því að efla tengsl milli fólks í samfélaginu og unnið gegn félagslegri einangrun og skapað aðstæður til að efla félagsleg tengsl milli íbúa Vestmannaeyja og þá sérstaklega við okkar eldri íbúa.


Tökum ábyrgð hvert á öðru                  

Við getum öll lagt eitthvað af mörkum. Þegar við gefum af okkur fáum við oft margfalt til baka. Í gleði, samhygð og sterkari tengslum. Manneskjan er í grunninn félagsvera og við þurfum öll að finna að við skiptum máli, líka þau sem eldri eru.  Að við séum séð, að á okkur sé hlustað og að við fáum raunveruleg tækifæri til að taka þátt. Pólitík á ekki að snúast um fáa eða forréttindi fárra. Hún á að byggja samfélag þar sem allir fá að njóta sín, óháð aldri.

 

Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans.

bottom of page