

Friðrik Björgvinsson
7. maí 2026
Úrgangur – vandamál eða auðlind?
Í umræðunni um úrgang gleymist oft eitt grundvallaratriði: í úrgangi er orka. Þetta er því ekki aðeins spurning um sorphirðu heldur hagsmunamál fyrir allt samfélagið – heimili, fyrirtæki og innviði.
Í dag er úrgangur fluttur á milli lands og Eyja með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn. Í því felst ákveðin mótsögn. Við flytjum efni frá samfélagi sem þarf á orku að halda, í stað þess að nýta orkuna þar sem hún fellur til. Slík nálgun er vart skynsamleg í einangruðu samfélagi þar sem bæði orka og flutningar kosta verulega fjármuni.
Sveitarfélögum er skylt að tryggja aðskilda söfnun og meðhöndlun úrgangs. En lögin segja ekki nákvæmlega hvernig það skuli gert. Þar liggur tækifærið. Spurningin er ekki hvort við eigum að flokka – heldur hvort við séum að gera það á hagkvæman og skynsaman hátt.
Þrátt fyrir að íbúafjöldi Vestmannaeyja sé takmarkaður endurspeglar hann ekki raunverulegt álag á úrgangskerfið. Umsvif í atvinnulífi, utanaðkomandi vinna og stórir viðburðir gera það að verkum að kerfið þarf í raun að þjóna stærra samfélagi en manntalið gefur til kynna. Úrgangskerfi á að hanna fyrir raunveruleikann – ekki pappírinn.
Raunhæf og skynsamleg leið til framtíðar er að líta á úrgang sem hluta af orkukerfi byggðarinnar. Það felur í sér að skoða uppbyggingu stöðvar sem nýtir úrgang til orkuframleiðslu með það að markmiði að mæta sem mest þörf samfélagsins á hagkvæman og öruggan hátt.
Slík nálgun snýst ekki aðeins um hagkvæmni. Hún snýst einnig um öryggi og sjálfbærni. Með því að nýta orkuna þar sem hún fellur til eykst sjálfstæði samfélagsins og dregur úr viðkvæmni gagnvart truflunum í flutnings- og orkukerfum.
Þetta er ekki verkefni sem leyst verður til skamms tíma. Hér þarf að horfa áratugi fram í tímann. Uppbygging af þessu tagi verður að byggjast á langtímahugsun þar sem kostnaður dreifist yfir langan tíma og er metinn í samhengi við það sem annars fellur til ár eftir ár.
Markmiðið ætti ekki að vera að losa sig við úrgang. Markmiðið ætti að vera að nýta hann.
Flokkun er lagaskylda – en sóun er val.
Friðrik BjörgvinssonFrambjóðandi í 16 sæti E-Listans.
