top of page

Ágúst Erling skrifar

Ágúst Erling Kristjánsson

Ágúst Erling Kristjánsson

29. apr. 2026

Ágúst Erling skrifar

Mig langar að þakka starfsfólki Herjólfs ohf fyrir góða þjónustu og viðmót á gífurlega erfiðum tímum sem eru í samgöngum hjá okkur núna. Þið eruð alltaf tilbúin til að gera allt sem í ykkar valdi er til að aðstoða okkur sem ferðumst með ykkur. Aldrei fær maður annað en gott viðmót þegar að maður kemur í afgreiðsluna eða hringir til að panta eða breyta miðanum. Þeir sem raða bílunum inn í skip virðast finna pláss fyrir helmingi fleiri bíla en ættu að komast með. Og starfsfólkið í skipinu er alltaf jákvætt og tilbúið að aðstoða.

Svo er stór hópur af fólki sem ég sé minna af en er líka að standa sig eins vel. Skipstjórar, vélstjórar, ræstitæknar og skrifstofufólkið er allt að gera sitt allra besta. Það er ekki öfundsvert að sigla á skipi sem er bilað og þurfa að fara sama hvað. Þau sem þrífa eru ekki öfundsverð að þurfa að taka skipið í gegn eftir sex tíma ferð með sjóveiki og viðbjóð. Og þeir sem taka síman og þurfa að þola skammirnar og reiðina eru í erfiðri stöðu.

Þegar við erum komin með nóg og viljum skamma eða vera reið munum þá að þetta fólk er í vinnu hjá okkur. Við eigum ekki Landeyjahöfn eða Herjólf skipið. Ríkið er sá aðili sem við eigum að tala við ef ekkert virkar. Ef við stöndum saman er hægt að gera ótrúlega margt.

Ágúst Erling Kristjánsson 6. Sæti Eyjalistanum

bottom of page